Stundum eru svörin einfaldlega skýr

Í ferðalag mundu fara brátt, og fara yfir hafið blátt. Hugmyndir þar heilla þig, og skilja mikið eftir sig. Innsæi þitt, er þinn fjársjóður: Ósk þín mun rætast, en þú þarft að hafa fyrir því......

 xoxo


Fyrirgefning

Við eyðum öllu lífinu í að fyrirgefa. Reyna að gleyma því sem á undan hefur breytt, breytt kannski öllu. Breytt leið sem átti að fara en var ekki farin... Kannski gerist ekkert af ástæðulausu, en stundum held ég líka að við skiptum okkur einfaldlega of mikið af því sem gerist, viljum taka stjórnina. En það erum ekki við sem eigum að stjórna.. Stundum einnig látum við aðra og áhrif frá öðrum taka stjórnina á okkar eigin lífi. Við ein erum ábyrg á lífi okkar. Grafið en ekki gleymt !!! En lífið heldur áfram, nýr dagur kemur og ný tækifæri bíða. Tækifærin sem við tökum á móti með allan þann lífsins böggul sem við höfum að bera. Ég hef alltof oft látið tækifærin frá mér fara, ekki nýtt þau eða einfaldlega bara ekki sagt hug minn, von og trú. Á maður að gera það upp svo maður þurfi aldrei að hugsa EF... eða bara einfaldlega halda áfram og grafa það alltaf lengra og lengra ????

Er enn að reyna að fyrirgefa sjálfri mér..... 

xoxo


Ice... hvað??

Jæja skólinn byrjaður á ný og hvern dag er verið að reyna að koma heimilinu aftur í reglu. Jólaskrautið farið niður og ekki tekið upp í þessari íbúð á ný. Nei við mæðgur ætlum að flytja í nýja höll þetta áriðSmile sattast að segja get ég varla beðið og eiginlega farin að undirbúa svo að þetta verði nú ekki ýkja mikið mál þegar að deginum stóra kemur...

Svo er það svona aðallega skólinn, barnið og agel sem á huga minn þessa dagana og bara spennandi tími framundanSmile sit hérna klst eftir klst og teikna og teikna og teikna, bara gaman.. 

Eigið góða helgi kæru vinir...

Einn að lokum:: og hættum svo þessu endalausa væli um kreppu:: enda enginn ástæða að tala um það þegar maður hefur góð orð líkt og þessi Wink

KARLAR !!! Þó íslenska gengið sé valt og úti sé andskoti kalt,með góðri kellingu í réttri stellingu bjargast yfirleitt allt......

xoxo

 


31.Desember 2009

Án vafa hefur þetta ár, árið 2009 verið eitt það merkilegasta og stórkostlegasta ár sem ég hef hingað til upplifað. Ein stór rússíbanaferð með allri sinni dýrð og fegurð, því jú ekki er allt oft eins og maður hefði kosið en allt í þessu lífi gerist af ástæðu og maður verður bara einfaldlega að staldra við, hugsa um það sem liðið er og  taka lærdóm sinn af því.

Eyrún Erla mín hélt áfram að stækka og verða fallegri og fallegri stúlka með hverjum deginum sem leið. Hún fór í nef- og hálskirtlatöku í upphafi ársins og hefur orðið þvílíkur munur á henni, engar hrotur sem héldu Grafarholtinu fyrir vöku lengur og hún slapp svona næstum því við allar flensur ársins. En það víst á ALLT að lagast með þessari litlu aðgerð. Svo var það í haust svona þegar að ég, móðirin mátti alls ekki við því. En ég meina, hver má við því að barnið sitt verði veikt og það fárveikt. En barnið fékk þessa skæðu svínaflensu með tilheyrandi einangrun og trúið mér móðurhjartað var þá frekar meyrt. En stúlkan mín lét þetta nú ekki mikið á sig fá og hélt bara áfram sínu striki. Vaknar og sofnar syngjandi alla dagaSmile  En það sem ég svo afar þakklát fyrir er hennar ákveðni, hlýja brosið og þolinmæði hennar meðan ég skapa framtíð okkar í náminu sem ég hef verið að stunda í vetur. Hún mun svo hefja árið með því að fara að æfa fimleika hjá Fimleikadeild Aftureldingar, ætlar sér að verða alveg eins og hún Sveinbjörg sín þessi elska. Fimleikadrottning, nánar tiltekið í bleiku. Spurning um að koma ábendingu að hjá Aftureldingu með breytingu á búningum, hafa þá bleika, vel bleika ha ha Wink

Svo er kannski bara málið að snúa umræðunni að mér, skrifaranum. Vá þetta ár, svona þegar að ég lít til baka þá er svo MIKIÐ sem hefur drifið á daga mína. Að sjálfsögðu byrjaði ég árið með trompi, enda tvíburi hér á ferð. Af fyrri hluta ársins er mér þá helst minnistætt afdrifaríka skíðaferð okkar Betu uppí Bláfjöll þar sem sumir skíðuðu í plóg og stólalyftan gekk aftur á bakWink Farið var nú í eina skíðaferð til viðbótar á árinu,en það alla leiðina til Akureyrar og get ég nú sagt að það er ekkert ýkja gaman að skíða eftir eitt eða tvö glös og hvað þá Akureyrarkirkju klingjandi sínum fallegu bjöllum á klst fresti meðan ég reyndi að festa svefn ha haLoL Það má eiginlega orða það þannig að þetta hafi hreinlega verið ár ákvarðanna í lífi mínu, allavega hingað til. Tók mínu erfiðustu ákvörðun á þessu ári og óska ég hér með að þurfa aldrei að taka slíka ákvörðun aftur á minni lífsleið. Svo einnig tók ég ákvörðun um að fara aftur í skóla og sú ákvörðun var ein sú besta hingað til og hef ég svo sannarlega notið mín í náminu í vetur og býð spennt eftir væntanlegri stundatöflu nk mánudag. En já, ár ákvarðanna, þær voru einfaldlega svo margar og af hinum ýmsu togum að ég fer ekkert nánar út í það. Tók mínar ákvarðanir og lifi með þeim í blíðu og stríðu. En það var svo sannarlega margt gott sem varð á vegi mínum þetta árið, árið sem senn líður undir lok. Ég kynntist fyrstu stóru ástinni í lífi mínu og er það svo sannarlega ekki sjálfgefið og frekar vandfundið ef eitthvað er. Sá partur mun ávallt eiga sér stað í mínu hjarta þó svo önnur eða aðrar ástir muni komast þar einnig að í komandi tíð. Já það er svo sannarlega gott að elska Heart Ekki fara illa með ástina kæru vinir..

Átti mér draum, stóran draum og viti menn, hann rættist. Nánar tiltekið þann 15.ágúst 2009 á Wembley leikvanginum. Þar sá ég meistarana mína spila og óska ég þess oft að geta bara staðið þar ein  með sjálfri mér og upplifað þá aftur, aldrei að vita nema sá draumur rætist bara aftur og aftur á næstu árum. Ég meina ef þú átt enga drauma, þá áttu ekkert til að lifa fyrir. Miðað við það verkefni sem ég hef allavega tekið að mér og ætla mér að massa big time á næstu mánuðum þá sé ég fram á fullt fullt fullt af U2 tónleikum og aldrei að vita nema að ég komist svona eins og nokkrum sinnum til Parísar, London og Rómar.  Við mæðgur áttum svo sannarlega magnaða tíma á haustmánuðunum, sem ég hef nú áður minnst á. En já þar kom við sögu, aðgerð, svínaflensan og fótur í gipsi. En ég meina, það sem drepur þig ekki, styrkir þig bara Smile svo er líka voðalega gott og vel metið að eiga góða að og við mæðgur eigum svo sannarlega góða að og erum afar þakklátarSmile

En að sjálfsögðu má ekki gleyma því að minnast á vinkonurnar, þið eruð æði og ég hlakka til að eyða fullt af yndislegum stundum með ykkur á komandi ári. En að sjálfsögðu munum við, allavega nokkrar fagna nýju ári við tóna Sálarinnar þann 1.des.. þar verða engar "angry toes", bara brosið og tilhlökkunin við komandi tímum, ógleymandi stundum sem munu verða til árið 2010...

Þakka yndislegt og ógleymanlegt ár, megi árið 2010 vera fullt af nýjum markmiðum og draumum

xoxo

Bergrún Ósk og fimleikadrottningin í bleiku

 


Lífið...

Lífið er tækifæri, gríptu það. Lífið er fegurð, dáðu hana. Lífið er gjöf, njóttu hennar. Lífið er draumur, láttu hann verða að veruleika. Lífið er áskorun, taktu henni. Lífið er skylda, gerðu hana Lífið er leikur, leiktu hann. Lífið er dýrmætt, gættu þess. Lífið er kærleikur, gef þig honum á vald. Lífið er loforð, látt...u það rætast. Lífið er sorg, sigraðu hana. Lífið er söngur, syngdu hann! -Móðir Teresa.

Styttist óðum í nýtt og enn betra ár.. Smile

xoxo

Bergrún Ósk


Gleðileg jól

 

Gleðileg jól 

 

Jólaknús

xoxo

Bergrún Ósk og Eyrún Erla


up and down

Komin í langþráð jólafrí, enn samt held ég að ná upp þessari þreytu, eða einfaldlega enn ekki að ná því að ég þurfi ekki að sitja heilu kvöldin og stundum fram á nætur við lestur og lærdóm. Ljúft já en ég er nú einu sinni tvíburi og er manneskja sem að nýt mín best þegar sem mest er að gera. Hélt uppá mín kæru próflok ásamt æðislegu fólki sl laugardag. Átti mitt augnablik þar sem ég bókstafleg gleymdi mér í að pæla í aðstæðum sem við vinkonurnar erum í og voru að ske þarna hægri vinstri í kringum okkur. Þótt skemmtistaðasleikir séu löngu farnir úr tísku og þessi troðningur sem að einkennir skemmtistaði Rvk-borgar þá kemst maður liggur við ekki hjá því að kyssa eins og einn og einn á kinnina eða bókstaflega strjúkast upp við hina ýmsu líkamsparta í öllum þessum troðningi. Fáranlegt hvað maður lætur hafa sig út í og endar svo þar á meðal kvöldið með trylltum dansi í ennþá meiri troðningi á síður en svo óþekktum bar. Eða eins og góður vinur sagði "Bergrún svo ferðu með mig á óþekktan og sveittan stað eins og þennan" ha ha en já, sækist maður í troðninginn, er það leiðin til að nálgast hitt kynið eða er þetta bara einfaldlega móðins þessa tíðina.. Jólin eru að koma, aðeins 10 dagar í forréttinn, hamborgarahrygginn og ísinn, já og pakkana.. Þó þeir séu nú ekkert orðnir svo ýkja margir þá er það mesta gleðin að sjá gleðina hjá dótturinni Smile sem að heimtar aðallega mjúka pakka, allavega þessi jólin. En það sem að ég og fólk í kringum mig hafa þó aðallega verið að upplifa núna sl daga eru lygar, lygar og það eru að koma jól. Hvað er að ykkur fólki. Sem betur fer hef ég nú persónulega ekki verið að upplifa mikið af þessu en mínir nánustu. Þoli hreinlega ekki af hverju fólk getur ekki bara verið  heiðarlegt og komið fram við náungann eins og það vill láta koma fram við sig. Sagt er að sá sem lýgur og er óheiðarlegur að hann sé það þá mest við sig sjálfan. Í alvörunni er lífið svona langt að maður getur eytt dýrmætum dögum í að gera eitthvað sem að veitir manni ekki hamingju og reynandi að gera öðrum til geðs umfram sjálfum sér??? Maður hefur aldrei lífið nákvæmlega eins og maður vill kannski hafa það, en vertu heiðarlegur sjálfum gagnvart þér því þá endar þú á besta staðnum... annars geturðu einfaldlega verið föst/fastur ár eftir ár. Ég sjálf var að glíma við svolítið gott, en samt var það eitthvað sem að ég þurfti að gera til að vera heil og bein við mig sjálfa. Aðrir geta kannski tekið því á annan hátt, en það er sumt sem að maður einfaldlega verður að gera. En núna gott fólk, eru að koma jól, tími sem að maður á að vera heiðarlegur og koma vel fram við náungann, nýtið tækifærið kjánar og byrjið ekki á sama staðnum á nýju ári. Byrjuð nýtt ár á ykkar forsendum, fyrir ykkar hamingju, ekki eyða enn öðru árinu í fólk og aðstæður sem þjónar ekki tilgangi í lífi ykkar. Jæja en þá er ég búin að eyða orðum og tíma í ræðu, kannski tilgangslausa, en samt ekki  ha ha eyddi tíma í mitt fólk í gær með þessari ræðu og vitið ég er bara búin að fá góð viðbrögð... Stundum einfaldlega sjáum við ekki það sem að blasir beint fyrir framan okkur, játa mig í þeim efnum klárlega sökudólg en þá var gott að eiga góðan vin sem að benti mér á það... what are friends for...Smile Æðislegt að fara satt og skotin Wink inn í nýtt árSmile Ef að ykku langar til að eyða jólunum í á bleikjum skýjunum með ástaraugu, þá hafið þið alveg heila 10 daga til að finna hina heppnu/hinn heppna. Opnið bara augun og verið opin fyrir hinu nýja eða einfaldlega því sem er beint fyrir framan nefið á ykkur, hafið kannski bara ekki enn tekið eftir þvíWink og það gæti einmitt verið "the keeper". Ég veit það af raun að það getur verið erfitt oft að losa sig úr aðstæðum sem þjóna ekki tilgangi í lífinu, þeas ekki tilgagnum sem þú hafðir óskað eftir. Þá þjónaði það samt tilgangi á eitthvern hátt. En um leið og því fyrr sem að þú losar þig úr þeim aðstæðum, sem þú btw settir þig sjálfa/sjálfan í þá gæti einmitt það sem að þú hefur leitað af alla tíð komið inní líf þitt... 

Þannig já sem sagt svona tilgangur með þessu rausi í mér, verið heiðarleg og samkvæm sjálfum ykkur, ekki láta eitthvað stoppa ykkur í að fá nákvæmlega það sem að þið viljið út úr lífinu..já og nú ef að það er eitthver sem á hjarta ykkar þá getið þið alltaf hermt eftir einu rómantískasta atriði úr kvikmynd sem til er, allavega að mínu mati. Love Actually, þar sem hann þurfti ekkert að segja, setti hjarta sitt bara á fullt af miðumWink nú eða gefa henni/honum súkkulaði.. geta ekki karlmenn líka elskað það eins og við konurnarWink 

xoxo


Ömmu Diddu dagur

Amma Didda var ein yndislegasta kona sem ég veit um.. Allir dýrkuðu hana og dáðu... Kveikti á kerti hjá henni í tilefni dagsins. Finnst samt alveg hræðilegt að hafa ekkert komist í sveitina mína þetta árið, aldrei gerst síðan að ég fæddistFrown en svona er bara stundum staðan.. bæti það upp á næsta ári..annars þá er allt ágætt af mér og mínum að frétta, aðeins eitt próf eftir Smile dóttirin komin heim í kotið og þá er allt svooo gott. Svona fyrir utan það að sjónvarpið mitt er klárlega í eitthvers konar regnbogaskapi... gult, rautt, bleikt og hvítt... hmm spurning hvort maður óski ekki bara eftir nýjum imba þessi jólin

xoxo


Spennufall!!!!!!!!!

Stóra prófið búin, prófið sem hefur valdið kvíða hjá mér er lokið.. Eftir æðislegt gærkveldi og svefnlausa nótt þá er ég vægast sagt í frekar MIKLU spennufalli núna. En verðlauna mér með góðum mat í kvöld ásamt mínum uppáhaldsSmile Stúlkan mín fer svo til föður síns á morgun og verður þá tekin síðari hlutinn af próflestri ásamt því að njóta þess að vera til.. og hvert kvöld að verða planað Wink Þýðir ekkert annað en að njóta lífsins næstu vikurnar áður en næsta geðveiki hefst á nýju ári, þeas skólageðveikin.. annað verður bara hið ljúfasta, ljúfasta..

TVÍBURAR 21. maí - 20. júní
Það reynir á þolinmæði þína þessa dagana. Brostu og mundu að með því að orða drauma þína eykur þú líkur á að þeir rætist. 

 Gott að vera Tvíburi í dag með svona spáWink , maður verður þá víst að fara að lesa draumana upphátt og skoða vel og vandlega DREAM CARD-ið  sem er kyrfilega vistað í tölvunni..svo er einnig spurning hvað Bára segir 22.des Wink thja eða þá bollinn á morgun Wink

xoxo


1.Desember 2009

kl.20:18 eða 01:18

.....og ég er stoltur meðlimurSmile

Bækurnar kalla, svo löng prófpása eftir prófið á morgun sem verður þar á meðal nýtt í afar gótt framtak okkar vinkvennannaWink Strax farið að hlakka til föstudagsins og helgarinnar þar sem reynt verður að taka jólahreingerninguna og heimilið skreytt Cool

xoxo


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband